Samgönguvikan sett á morgun - dagskrá

 Á morgun verður sett samgönguvika og er sem fyrr einstaklega skemmtilegur viðburður. Ég læt dagskrá samgönguviku fylgja hér að neðan.

Þriðjudagurinn 16. sept. 
14:00     Setning Samgönguviku í Foldaskóla:

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar setur Samgönguviku.
Samgönguhverfi ársins, Grafarvogur/Kjalarnes, fá Samgöngublómið afhent
Leikskólakórinn Foldafuglar flytur tónlistaratriði.
Ljósmyndasýning leikskólabarna frá Miðborg/Hlíðum.
Rallýkappar etja kappi við torfærukappa í vistakstri. Landvernd stendur fyrir átaki í vistakstri í Samgönguviku.

Miðvikudagur 17. september
Hvernig kemur þú í skólann?
Könnun á ferðavenjum reykvískra ungmenna. Athugun á því hversu margir nemendur í 6. bekk grunnskólanna í Reykjavík eru keyrðir í skólann, hversu margir koma í strætó, hverjir hjóla og hverjir ganga.20:00     Stofnfundur félags áhugamanna um bíllausan lífsstíl í Ráðhúsi Reykjavíkur. Samtök um bíllausan lífsstíl er þverpólitískt félag fólks sem hefur það sameiginlega áhugamál að gera bíllausan lífsstíl að vænlegri kosti en nú er. Markmið félagsins er að stuðla að fjölbreyttari samgöngum og berjast fyrir því að jafnræðis sé gætt milli ólíkra samgöngukosta. Á stofnfundi verður kosið í stjórn, lög samþykkt og fyrirhuguð starfsemi kynnt. Allir eru velkomnir. Fundarstjóri er Samúel T. Pétursson, skipulagsverkfræðingur. Ráðhús Reykjavíkur.Ráðhús Reykjavíkur.Fimmtudagur 18. september
Driving sustainability
’08 – Ráðstefna um orkugjafa framtíðarinnar í samgöngum. Hilton Nordica
Ísland gæti innan skamms orðið nær óháð erlendum orkugjöfum samhliða komandi fjöldaframleiðslu á rafmagns- og tengil-tvinnbílum. Stefnumarkandi fundur bílaframleiðenda og orkufyrirtækja. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er verndari ráðstefnunnar. Nánari upplýsingar og skráning á driving.is.
 20:00     „Hreint loft fyrir alla" Málþing í IðnóKvöldfundur um samgöngu- og loftlagsmál í samvinnu Reykjavíkurborgar, Hafnarfjarðarbæjar og Mosfellsbæjar.  Ræðumenn eru Unnur Steina Björnsdóttir, læknir og dósent við HÍ, Gunnar Hersveinn, heimspekingur, Halldóra Thoroddsen rithöfundur, Ólafur Guðmundsson, tæknistjóri EuroRAP og Ómar Ragnarsson, fréttamaður. Fundarstjóri er Leifur Hauksson, útvarpmaður.
Iðnó, Vonarstræti 3.
 Föstudagur 19. September
Driving sustainability
’08 – Ráðstefna um orkugjafa framtíðarinnar í samgöngum.
Framhald, sjá dagskrá fimmtudags.
 Strætódagur: lúðrasveit og ljóð í Strætó Ný strætórein ,,rauði dregillinn“ á Miklubraut verður formlega opnuð við hátíðlega athöfn  Leynileikfélagið Stígis útbýr ljóðamenn sem koma sér haganlega fyrir í strætisvögnum. Lúðrasveitin Svanur ferðast um borgina í gömlum strætó og stígur út hér og þar og leikur fyrir viðstadda.  Forsmekkur að flóðinu. Forlagið birtir upphafskafla væntanlegra bóka - íslenskra og þýddra - fyrir börn og fullorðna í Strætó. Laugardagur 20. september
Hjólalestir
sem henta allri fjölskyldunni leggja af stað til Nauthólsvíkur.
11:30     frá Hafnarborg í Hafnarfirði
12:10     frá Sjálandsskóla í Garðabæ
12:50     frá Gerðasafni í Kópavogi
11:30     frá nýja Miðbæjartorginu í Mosfellsbæ
12:00     frá Hallsteinshöfða í Grafarvogi
12:30     frá Minjasfni Orkuveitunnar í Elliðaárdal
13:00     frá Vesturbæjarlaug
13:45     Allir hjóla saman frá Nauthólsvík að Ráðhúsi Reykjavíkur
14:10     Felix Bergsson, leikari, tekur á móti gestum og leikur við hvern sinn fingur14:30     Tjarnarspretturinn
Borgarstjórinn í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, setur þennan árvissa viðburð á Samgönguviku. Þaulvanir keppnismenn í hjólreiðum keppa á götuhjólum hringinn í kringum Tjörnina í Reykjavík. Hjólaðir eru 15 hringir í karlaflokki og 10 hringir í kvennaflokki. Keppnin er einstaklega áhorfendavæn. Keppendur ná miklum hraða í hringnum og þurfa að takast á við krappar beygjur á mikilli ferð. Allir hvattir til þess að koma klappa og hvetja.
15:00     Hjólasirkus Landsliðið í hjólaleikni leikur listir sínar.
Hjólreiðafélag Reykjavíkur kynnir starfsemi sína og hjólafærni á skjám í Ráðhúsinu.
Ný hjólastígakort verða gefin út með öllum hjólastígum á höfuðborgarsvæðinu.
15:30     Verðlaunaafhending
afhent verða verðlaun í Tjarnarsprettinum.
Boðið verður uppá léttar veitingar í Ráðhúsinu og dagskrá lýkur kl. 16:00.
Sunnudagur  21. september
12:15 Hjólatúr
í Samgönguhverfi ársins, Grafarvogi. Hjólað um hverfið á hraða sem hentar allri fjölskyldunni. Vakin athygli á ýmsu í nánasta umhverfinu sem mörgum yfirsést. Lagt að stað frá Borgarholtsskóla.

Mánudagurinn 22. September
Í bæinn án bílsins.

íbúar eru hvattir til þess að hvíla bílinn í einn dag og nota aðra samgöngukosti, svo sem að hjóla, ganga eða að taka strætó. Í tilefni dagsins verður Pósthússtræti lokað og meistaranemar í Lýðheilsufræði við Háskólann í Reykjavík bjóða skólabörnum til leiks.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband