Þessi tilkynning er á heimasíðu Hjólreiðafélags Reykjavíkur:
Sumardagurinn fyrsti er á næsta fimmtudag 22. apríl, Hjólreiðafélag Reykjavíkur ætlar að hafa veglega æfingu af því tilefni og leggja saman sam-hjól og vera með Samhjól á sumardaginn fyrsta, hjóla í Nesbúð á Nesjavöllum. Komdu með !
Hjólað verður Mosfellsheiðina og Grafninginn og endað í Nesbúðinni. Þeir sem vilja meira geta hjólað í bæinn tilbaka sömu leið, ég geri ráð fyrir því að Nesjavallaleiðin verði fær. Þau sem eru búinn að fá nóg láta sækja sig í Nesbúð. Svo er náttúrulega hægt að hjóla með upp á Mosfellsheiði og snúa þar við ef ekki er tími fyrir langan túr.
Við leggjum af stað frá Nauthólsvík kl 9:30, komum við í Húsasmiðjunni í Grafarholti, gerum ráð fyrir því að vera þar kl 10. Hópurinn hjólar rólega í einum hóp að Gljúfrasteini en þá verður skipt upp í hópa eftir hraða, allir eiga að finna hóp við sitt hæfi.
Í tilefni sumarkomu vil ég bjóða hjólafélagið Bjart, Hjólamenn, Hjólakonur, Þríþrautargarpa, HMS, IFHK og allt hjólreiðafólk yfirleitt með okkur í þennan túr í tilefni sumarkomu. Það væri glæsileg byrjun á sumri ef stór hópur hjólreiðafólks legði á heiðina.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 21.4.2010 | 09:03 (breytt kl. 09:04) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.