Sumardagurinn fyrsti er á næsta fimmtudag 23 apríl, Hjólreiðafélag Reykjavíkur ætlar að hafa veglega æfingu af því tilefni, hjóla í Nesbúð á Nesjavöllum. Hjóla Mosfellsheiðina og Grafninginn og enda í hádegismat í Nesbúðinni. Þeir sem vilja meira geta hjólað í bæinn tilbaka sömu leið, ég geri ráð fyrir því að Nesjavallaleiðin verði fær. Þau sem eru búinn að fá nóg láta sækja sig í Nesbúð. Svo er náttúrulega hægt að hjóla með upp á Mosfellsheiði og snúa þar við ef ekki er tími fyrir langan túr.
Við leggjum af stað frá Nauthólsvík kl 9:30, komum við í Húsasmiðjunni í Grafarholti, gerum ráð fyrir því að vera þar kl 10. Hópurinn hjólar rólega í einum hóp að Gljúfrasteini en þá verður skipt upp í hópa eftir hraða, allir eiga að finna hóp við sitt hæfi.
Í tilefni sumarkomu vil ég bjóða Hjólamenn, Hjólakonur, Þríþrautargarpa, IFHK og allt hjólreiðafólk yfirleitt með okkur í þennan túr í tilefni sumarkomu. Það væri glæsileg byrjun á sumri ef stór hópur hjólreiðafólks legði á heiðina.
Flokkur: Hjólreiðar | 22.4.2009 | 09:26 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.