Á Laugardaginn fór fram mót í fjallabruni og á heimasíðu HFR má finna hlekk í þetta frábæra myndband sem tekið var upp þar, Það er tekið með myndavél sem búið er að festa á hjálminn hjá keppandanum og sýnir af hverju adrenalínfíklar eiga heima í þessu sporti.
Mæli eindregið með þessu og líka að lesa meira um mótið á heimasíðu HFR www.hfr.is
Myndbandið er innan við 2 mín og vel þess virði að horfa á
Athugasemdir
Flott myndband.
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 26.4.2010 kl. 06:42
Vá! Ég myndi enda á sjúkrahúsi ef ég myndi reyna þetta, hehehe. Svo ég læt mér nægja að horfa á svona lagað á netinu. Fer oft slóða í skógum, en er þá bara á töltinu.
Hjóla-Hrönn, 26.4.2010 kl. 10:18
Þetta er rosalegt. Það er ein svakaleg braut fyrir svona ofurhuga í Kjarnaskógi á Akureyri. Ég þori varla að labba hana því sumstaðar eru þetta bara langir plankar í yfir tveggja metra hæð.
En það er hollt að hjóla!
Sumarliði Einar Daðason, 26.4.2010 kl. 12:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.