Mikilvæg tillaga á 12 og Reykjavík - Hjólarein á Miklubraut - Endilega kjósa

Það er mikilvægt að við hjólreiðafólk látum í okkur heyra og förum á http://12og.reykjavik.is/Overview.aspx og finnum þar mál 2070 og merkjum að við séum mjög hlynnt því með því að smella á grænu örina.

Þetta væri langstærsta samgöngubót fyrir hjólreiðafólk í Reykjavík þannig að endilega verum samstíga og tökum þátt í tillögunni.

Hér má sjá tillöguna:
Nú liggur fyrir á 12og reykjavík. 

Lýsing Mál 2070

 

Nú er verið að leggja forgangsakrein á Miklubraut milli Grensásvegar og Kringlumýrarbrautar. Ég skora á Reykjavíkurborg að leggja aðgreinda hjólreiðabraut samhliða þessum framkvæmdum þar sem breyta þarf gatnamótum á minnst tveimur gatnamótum. Það er aðeins tvíverknaður að ætla að leggja hina löngu tímabæru hjólreiðabraut einhverntíma seinna. Hér er tækifæri fyrir Reykjavikurborg til að sýna viljan í verki og bæta aðstöðu hjólreiðafólks með augljósum hætti. Ég óska eftir að þessari beiðni verði svarað með tölvupósti áður en framkvæmdum likur við forgangsakreinina. "

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband